MATVÍS - Fæðing barns - styrkur

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:08 AM by Baldur Guðmundsson

Heimilt er að veita fæðingarstyrk vegna fæðingar barns félagsmanns að upphæð kr. 162.206 fyrir hvert barn. Upphæðin tekur mið af starfshlutfalli viðkomandi.
Styrkupphæðin miðast við hvert barn og miðar við að foreldri hafi stundað 100% vinnu síðastliðna 6 mánuði fyrir fæðingu barns. Styrkurinn lækkar í sama hlutfalli og starfshlutfall viðkomandi. Þurfi félagsmaður að draga úr vinnu eða hætta störfum vegna veikinda fyrir fæðingarorlof skal horfa til starfshlutfalls áður en til veikindanna kom.

  • Félagsmaður þarf að vera í a.m.k. 75% fæðingarorlofi til þess að eiga rétt á styrk, sé fæðingarorlof tekið hluta úr mánuði en er yfir 75% af fullum mánuði er heimilt að veita styrkinn. 
  • Fæðingarstyrkur á við um alla þá sem njóta réttinda til fæðingarorlofs úr Fæðingarorlofssjóði, þ.m.t. fæðingarorlof vegna ættleiðingar. 
  • Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24 mánaða aldri barns/barna.
  • Þegar sótt er um fæðingarstyrk skal framvísa fæðingarvottorði, staðfestingu frá fæðingarorlofssjóði um töku fæðingarorlofs og staðfestingu atvinnurekanda um að umsækjandi sé með ráðningu þar sem fram koma upplýsingar um starfshlutfall hans s.l. 6 mánuði fyrir fæðingu barns.
  • Ef barn fæðist andvana eftir átján vikna meðgöngu er greitt 50% af styrk.
  • Athygli er vakin á því að greiða þarf tekjuskatt af fæðingarstyrk og er tekjuskattur dreginn af styrkupphæð áður en styrkurinn er greiddur viðkomandi.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article