MATVÍS - Námskeið og ferðastyrkir

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:08 AM by Baldur Guðmundsson

Reglur um endurgreiðslur úr fræðslusjóði matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR fræðsluseturs

Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR fræðsluseturs styrkir félagsmenn sína til náms sbr. eftirfarandi reglur.  Félagsmenn matvæla- og veitingasviðs eru þau sem greiða fullt gjald í Fræðslusjóð sviðsins.

1. Fagnámskeið á vegum matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR.

Matvæla- og veitingasvið niðurgreiðir námskeið á vegum sviðsins að lágmarki um 70% fyrir félagsmenn sína.

2. Fagnámskeið á sviði matvæla- og veitingagreina haldin af viðurkenndu fræðsluaðilum, öðrum en matvæla- og veitingasviði

Fræðslusjóður matvæla- og veitingasviðs styrkir félagsmenn sína sbr. eftirfarandi:

  1. Fagtengd námskeið eru styrkt sem nemur 40% af kostnaði. Önnur námskeið um 25%. Styrkur til félagsmanns er að hámarki kr. 40.000 á ári.
  2. Félagsmaður þarf að leggja fram staðfest frumrit reiknings vegna námskeiðs eða námskeiða sem sótt er um og hann hefur sannanlega greitt fyrir.

3. Ferðastyrkur vegna fagnámskeiða

Félagsmenn geta sótt um ferðastyrki vegna námskeiða á vegum IÐUNNAR, sbr. eftirfarandi. Sjá hér.

Afgreiðsla umsókna

Með umsókn þarf að fylgja staðfesting á greiðslum í fræðslusjóð matvæla- og veitingagreina. Matvæla- og veitingasvið metur umsóknir og áskilur sér rétt til þess að ákvarða hlutfall endurgreiðslna í hverju tilviki eða hafna umsóknum sem uppfylla ekki skilyrði til styrkja samkvæmt þessum tillögum.

Meðferð ágreiningsmála

Stjórn matvæla- og veitingasviðs fer yfir ágreinings- og álitamál sem kunna að rísa og afgreiðir mál. Deilumálum og stefnumótandi ákvörðunum er vísað til eigenda til lokaákvörðunar.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article