Álag á dagvinnukaup greiðist á þann hluta 40 stunda vinnu að meðaltali á viku, sem fellur utan tímabilsins kl. 08:00 - kl. 17:00 mánudaga til föstudaga á eftirfarandi hátt:
- 33% álag á tímabilinu kl. 17:00 - kl. 24:00 mánudaga til föstudaga.
- 45% álag á tímabilinu kl. 00:00 - kl. 08:00 alla daga svo og um helgar.
Álag á helgidögum
Vinna á skírdag, annan í páskum, sumardaginn fyrsta, 1. maí, uppstigningardag, annan í hvítasunnu, fyrsta mánudag í ágúst og annan dag jóla greiðist með 45% álagi á dagvinnukaup.
Álag á stórhátíðardögum
Vinna á nýársdag, föstudaginn langa, páskadag, hvítasunnudag,17. júní, aðfangadag eftir kl. 12:00, jóladag og gamlársdag eftir kl. 12:00 greiðist með 90% álagi á dagvinnukaup.
Yfirvinna
- Yfirvinnuálag er 1,02% af mánaðarlaunum í dagvinnu af fyrstu 17,33 tímunum umfram 160 virka vinnutíma á mánuði.
- Yfirvinnuálag 1 er 1% og greiðist af allri yfirvinnu umfram 17,33 tíma á mánuði og alltaf frá 24,00 og 06,00
- Yfirvinnuálag 2 er 1,15% af mánaðarlaunum.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article