Byggiðn - Matar- og kaffitímar

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:30 AM by Baldur Guðmundsson

Í dagvinnu

  • Hádegismatartími er ein klst. á tímabilinu frá kl. 11:30 til kl. 13:30 og telst hann ekki til vinnutíma. Starfsmenn og atvinnu- rekandi á hverjum vinnustað skulu gera með sér samkomulag um nánari tímasetningu á matarhléum. Heimilt er með samkomulagi að taka upp styttri matarhlé. 
  • Kaffihlé í dagvinnu eru samtals 35 mínútur, tekin fyrir og eftir hádegi og teljast ekki til vinnutíma. Starfsmenn og atvinnurekandi á hverjum vinnustað gera með sér samkomulag um nánari tímasetningu á kaffihléum. Heimilt er með samkomulagi á vinnustað að fella annan eða báða kaffitímana niður. 
  • Ef unnið er í hádegismatartíma eða morgun- eða síðdegiskaffitímum skal það greitt sem yfirvinna. Sé aðeins hluti matar- eða kaffitíma unninn greiðist yfirvinnukaup sem því nemur. 

Í yfirvinnu

  • Ef unnin er yfirvinna skal kvöldmatarhlé alla daga vera kl. 19:00 til kl. 20:00. Þar sem neysluhlé hafa verið stytt eða aflögð og viðverutími á vinnustað styttur af þeim sökum getur kvöldmatarhlé færst fram allt til kl. 18:00 enda sé þá tekið matarhlé og vinnu fram haldið að hléi loknu. Matartími að nóttu skal vera kl. 02:00 til kl. 03:00. 
  • Þar sem neysluhlé hafa verið stytt eða aflögð og viðverutími á vinnustað styttur af þeim sökum getur kvöldmatarhlé færst fram allt til kl. 18:00 enda sé þá tekið matarhlé og vinnu fram haldið að hléi loknu. 
  • Laugardaga og sunnudaga skal veita jafn mörg kaffihlé og aðra daga. 
  • Þegar unnin er yfirvinna skal vera 20 mín. kaffihlé kl. 22:30, kl. 04:30 og kl. 06:30. 
  • Öll matar- og kaffihlé í yfirvinnu og helgidagavinnu greiðast sem vinnutími. 
  • Ef unnið er í matar- eða kaffitíma í yfirvinnu reiknast tilsvarandi lengri tími unninn. 
  • Óheimilt er að afskrá starfsmann úr vinnu þegar komið er að kaffi- eða matartímum í yfirvinnu á tímabilinu frá kl. 22:30 (eða fyrsta neysluhlé eftir kvöldmatarhlé) til kl. 07:00. Þeir greiðast til viðbótar hinum unnu tímum. 

Matur

  • Á öllum vinnustöðum þar sem ekki er mötuneyti í næsta nágrenni, þar sem starfsmenn gætu keypt mat, og vinnustaður fjær heimilum starfsmanna en svo að þeir komist með góðu móti til hádegisverðar í umsömdum matartíma, skulu atvinnurekendur útvega heitan hádegisverð á vinnustað eða jafngildi hans, en starfsmenn greiða matinn á umsömdu kostnaðarverði.
  • Stefnt skal að því að koma upp mötuneytisaðstöðu fyrir starfsmenn eða tryggja þeim aðgang að mötuneyti. Þar sem mötuneytisaðstöðu hefur verið komið upp skulu samningsaðilar vinna að því að sem flestir starfsmenn skipti við mötuneytið. Mötuneyti telst sá staður, þar sem aðstaða er til að bera fram mat á sama hátt og á viðurkenndum matsölustöðum, enda séu húsakynni samþykkt af heilbrigðisyfirvöldum og samningsaðilum. Fyrirtæki greiða kostnað við rekstur mötuneytis. Starfsmenn greiði hins vegar efnisverð matar. 
  • Þegar yfirvinna fellur til með innan við tvær klst. fyrirvara sem og að næturlagi, ber atvinnurekanda að leggja starfsmönnum til heitan málsverð í kvöldmatartímum þeim að kostnaðarlausu. 

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article