Matar- og kaffihlé í dagvinnu
- Hádegismatartími er ein klst. á tímabilinu frá kl. 11:30 til kl. 13:30 og telst hann ekki til vinnutíma.
- Starfsmenn og atvinnurekandi á hverjum vinnustað skulu gera með sér samkomulag um nánari tímasetningu á matarhléum. Heimilt er með samkomulagi að taka upp styttri matarhlé.
- Gildir frá og með 1. apríl 2020: Kaffihlé í dagvinnu eru samtals 35 mínútur, tekin fyrir og eftir hádegi og teljast ekki til vinnutíma.
- Starfsmenn og atvinnurekandi á hverjum vinnustað skulu gera með sér samkomulag um nánari tímasetningu á kaffihléum.
- Heimilt er með samkomulagi á vinnustað að fella annan eða báða kaffitímana niður.
- Ef unnið er í hádegismatartíma eða morgun- eða síðdegiskaffitímum skal það greitt sem yfirvinna. Sé aðeins hluti
- matar- eða kaffitíma unninn greiðist yfirvinnukaup sem því nemur.
Matar- og kaffihlé í yfirvinnu
- Matarhlé í yfirvinnu er kl. 19:00 – 20:00.
- Þar sem neysluhlé hafa verið stytt eða aflögð og viðverutími á vinnustað styttur af þeim sökum getur kvöldmatarhlé færst fram allt til kl. 18:00 (enda sé þá tekið matarhlé og vinnu fram haldið að hléi loknu.)
- Matartími að nóttu skal vera kl. 03:00 til 04:00. Kaffihlé í yfirvinnu er kl. 22:30 – 22:50 og kl. 06:30 – 06:50.
- Öll matar- og kaffihlé í yfirvinnu og helgidagavinnu greiðast sem vinnutími og sé unnið í þeim greiðist tilsvarandi lengri sem unninn. Um lengd neysluhléa um helgar fer með sama hætti og virka daga.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article