MATVÍS - Veikinda- og slysaréttur

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:03 AM by Baldur Guðmundsson

Laun í sjúkdóms- og slysaforföllum

Starfsmaður ávinnur sér rétt til launa í veikinda- og slysaforföllum sem hér segir: 

  • Á fyrsta starfsári hjá sama atvinnurekanda, tveir dagar á föstum launum fyrir hvern unninn mánuð.
  • Eftir eins árs samfellt starf hjá sama atvinnurekanda, einn mánuður á föstum launum.
  • Eftir þriggja ára samfellt starf hjá sama atvinnurekanda, tveir mánuðir á föstum launum.
  • Eftir fimm ára samfellt starf hjá sama atvinnurekanda tveir mánuðir á föstum launum og einn mánuður á dagvinnulaunum. 
  • Réttur til launa vegna veikinda- og slysaforfalla er heildarréttur á 12 mánaða tímabili án tillits til tegundar veikinda. 


Vinnuslys og atvinnusjúkdómar

  • Forfallist starfsmaður af völdum slyss við vinnuna eða slasast á beinni leið til eða frá vinnustað og eins ef starfsmaður veikist af atvinnusjúkdómi, skal hann halda dagvinnulaunum í þrjá mánuði umfram áunnin rétt. 
  • Athugið að óvinnufærni af völdum slyss getur hvort heldur komið fram strax eftir slys eða síðar. Um sönnun og orsakatengsl fer samkvæmt almennum reglum.
  • Ofangreindur rétur er sjálfstæður réttur og gengur ekki á veikindarétt starfsmanns.
  • Dagpeningar frá Tryggingastofnun ríkisins vegna þessara daga ganga til launagreiðanda.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article