Uppsagnarfrestur í landi
Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur og miðast við viku- eða mánaðamót.
Heimilt er að ráða starfsmann tímabundið eða til ákveðins verkefnis. Ráðning samkvæmt framansögðu má þó ekki vera til lengri tíma en þriggja mánaða. Slíku ráðningarsambandi má þó segja upp með tveggja vikna fyrirvara m.v. vikumót.
Lengd uppsagnarfrests
Málmiðnaðarmenn og vélstjórar:
- Fyrstu 6 mánuði í starfsgrein: 2 vikur
- Eftir 6 mánuði í starfsgreininni: 1 mánuður
- Eftir 3 ár í starfsgreininni: 2 mánuðir
- Eftir 5 ár í sama fyrirtæki : 3 mánuðir
Starfsmenn án sveinsprófs:
Á fyrsta starfsári: 2 vikur
- Eftir 1 ár samfellt í starfsgreininni: 1 mánuður
- Eftir 3 ár samfellt í sama fyrirtæki: 2 mánuðir
- Eftir 5 ár samfellt í sama fyrirtæki: 3 mánuðir
Starfslok
Sé starfsmanni sagt upp, eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sama fyrirtæki, er uppsagnarfrestur 4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára, 5 mánuðir ef hann er orðinn 60 ára og 6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára. Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.
Uppsagnarfrestur á sjó
• Samkvæmt 9. grein sjómannalag skal uppsagnarfrestur á skiprúmssamningi vélstjóra vera þrír mánuðir nema um annað hafi sérstaklega verið samið og á það einnig við um skipverja sem starfað hefur sem afleysingamaður í yfirmannsstöðu í níu mánuði samfleytt hjá sama útgerðarmanni.
• Við ráðningu í skiprúm skal nota staðlað samningsform.
• Ef ekki er um tímabundna ráðningu að ræða er uppsagnarfrestur vélstjóra þrír mánuðir. Uppsögn skal vera skrifleg af beggja hálfu og miðast uppsagnarfrestur við dagsetningu uppsagnarbréfs.
• Fari vélstjóri fyrirvaralaust úr starfi eða áður en uppsagnarfrestur er liðinn án lögmætrar ástæðu, á útgerðarmaður rétt á bótum úr hendi vélstjóra er nemi launum fyrir hálfan uppsagnarfrest eða helming þess tíma sem eftir er af uppsagnarfrestinum.
• Í kjarasamning VM við SFS, grein 1.23. um réttindi afleysingamanna segir: Sé ráðinn afleysingamaður og hafi hann verið lögskráður sem yfirmaður hjá sömu útgerð í 7 mánuði á undangengnum 12 mánuðum með eðlilegri fríatöku öðlast hann öll þau réttindi til að gegna viðkomandi stöðu.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article