Vaktaálag
Vaktaálag fyrir vaktavinnu (utan kl. 08:00 - kl. 16:00 mánudaga til föstudaga) er sem hér segir
- 35% á tímabilinu kl. 16:00 - kl. 24:00 mánudaga til föstudaga
- 55% á tímabilinu kl. 08:00 - kl. 24:00 laugardaga og sunnudaga
- 60% á tímabilinu kl. 00:00 - kl. 08:00 alla daga
Öll vinna vaktavinnumanna umfram 37 klst. á viku að meðaltali skal greidd með yfirvinnukaupi.
Vinna á stórhátíðum greiðist þó með yfirvinnukaupi auk fastra launa.
Sérreglur um skammtímavaktir
- Greiða skal 10 mínútur í yfirvinnu fyrir hverja unna vakt, þegar vaktavinna stendur yfir skemur en 1 mánuð. (Hér er ekki átt við lengd verka)
- Hafi vaktavinnutímabil verið áætlað skemmra en einn mánuður, en lengist síðan einhverra hluta vegna, skal þó eigi greiða þetta skammtímavaktaálag lengur en í einn mánuð.
- Hafi vaktavinnutímabil hins vegar verið áætlað lengra en einn mánuður, en lýkur þó innan mánaðar skal greiða skammtíma- vaktaálag á þær vaktir, sem unnar voru.
Fyrirvari og uppsögn vaktavinnutímabils
Sé fyrirhugað að taka upp vaktavinnu í fyrirtæki, þarf að tilkynna starfsmönnum þá fyrirætlan með fyrirvara, sem er háður lengd væntanlegs vaktavinnutímabils. Sama gildir um uppsögn vaktavinnufyrirkomulags:
Lengd vaktavinnutímabils | 7 dagar - 1 mánuður | 1-6 mánuðir | 6 mánuðir eða lengur |
Fyrirvari vaktupptöku | 3 dagar | 14 dagar | 21 dagur |
Uppsögn vakta | Samtímis | 1 vika | 1 mánuður |
Lengd vakta og neysluhlé
Starfsmaður í vaktavinnu hefur ekki matartíma nema um það hafi verið samið. Vélstjórar taka neysluhlé eftir því sem aðstæður leyfa eftir nánara samkomulagi við vinnuveitanda.
Lengd vakta | Lengd neysluhlés | Fjöldi neysluhléa |
8 klst. | 35 mín. | 1 hlé |
9 klst. | 40 mín. | 2 hlé |
10 klst. | 45 mín. | 2 hlé |
11 klst. | 50 mín. | 2-3 hlé |
12 klst. eða lengur | 65 mín. | 2-3 hlé |
Vaktaskipta-/fataskipta-/þvottagjald
Greiða skal 15 mínútur í yfirvinnu fyrir hverja unna vakt fyrir þann tíma er fer til fataskipta, þvotta starfsmanna, svo og vaktaskipta á vinnustað (verkstæði), enda skiptast starfsmenn á nauðsynlegum upplýsingum við vaktaskipti og vinna stöðvist ekki á meðan.
Yfirvinnukaup
- Yfirvinna 1 greiðist með tímakaupi sem samsvarar 1,00% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
- Yfirvinna 2 greiðist með tímakaupi sem samsvarar 1,15% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Stórhátíðarkaup
Öll vinna, sem unnin er á stórhátíðum (Nýársdagur, Föstudagurinn langi, Páskadagur, Hvítasunnudagur, 17. júní, Aðfangadagur jóla eftir kl. 12:00, Jóladagur, Gamlársdagur eftir kl. 12:00) greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.
Útkall
- Þegar starfsmaður er kvaddur til vinnu eftir að dagvinnutímabili er lokið og hann er farinn af vinnustað skal hann fá greidda eina klst. auk unnins tíma, vegna röskunar á frítíma.
- Við þær aðstæður greiðist aldrei minna en þrjár klst. (ein klst. vegna röskunar á frítíma innifalin), nema dagvinna hefjist innan þriggja klukkustunda frá því hann kom til vinnu.
- Ákvæði þetta á ekki við vinnu sem unnin er í beinu framhaldi af dagvinnu eða yfirvinnu.
- Fyrir útkall á helgidögum greiðist ekki minna en 4,5 klst. (ein klst. vegna röskunar á frítíma innifalin).
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article