Almennur vinnufatnaður
- Starfsmenn skulu fá tvo vinnugalla á ári og skal skila ónothæfum fyrir nýjan. Vinnugallar er eign atvinnurekanda og sér hann um hreinsun á þeim á sinn kostnað. Við starfslok skal starfsmaður standa skil á öllum vinnufatnaði.
- Tegund vinnufatnaðar ákvarðast með tilliti til hverskonar störf starfsmenn vinna.
- Í stað almenns vinnufatnaðar er atvinnurekanda heimilt að greiða starfsmönnum í byggingariðnaði sérstakt fatagjald kr. 24,38 á unna stund (m.v. 1.4.2019), sem tekur almennum launahækkunum. Fyrir fatagjald í tímavinnu og ákvæðisvinnu skulu starfsmenn sjá sér fyrir öllum almennum vinnufatnaði, þar með töldum samfestingum í vinnu við olíuborin mót. Fatagjaldið ber þó ekki að greiða í fjarvistum vegna veikinda eða slysa og ekki heldur í orlofi eða óunnum helgidögum.
- Heimilt er með samkomulagi atvinnurekanda og starfsmanns að greiða fatagjald, kr. 13,83 (m.v. 1.4.2019) við hverja launaútborgun inn á sérstakan fatareikning hvers starfsmanns. Úttektarheimild miðast við inneign á fatareikningi viðkomandi starfsmanns og miðast úttekt við kostnaðarverð vinnufatnaðar. Nýti starfsmaður ekki úttektarheimildina að fullu, skal mismunur greiddur út við árslok eða við starfslok.
Sérstakur vinnufatnaður
- Í sérstökum óþrifatilfellum þar sem verkefnið eða vinnustaðurinn er mengaður sóti, lýsi, tjöru, olíu eða hráefni fiskimjölsverksmiðju, svo og öðrum þeim efnum er að mati verkstjóra og trúnaðarmanns geta eyðilagt fatnað, skulu starfsmenn fá sérstök hlífðarföt.
- Hlífðarhanska (skinnhanska) og hlífðarsvuntur skulu starfsmenn fá við rafsuðu og grófgerð störf.
- Þegar starfsmenn vinna við þvott með sýrum eða þynni, svo og þegar unnið er með uppleysi, skulu þeim útvegaðar svuntur og hlífðarhanskar (gúmmíhanskar).
- Hlífðarfatnaður
- Um öryggisskó og hlífðarfatnað vísast til reglna um notkun persónuhlífa nr. 497/1994. Óheimilt er að greiða fatagjald í stað þess hlífðarfatnaðar sem um getur í þessum reglum, enda telst hann ekki til almenns vinnufatnaðar.
- Um öryggisskó og hlífðarfatnað vísast til reglna um notkun persónuhlífa nr. 497/1994. Óheimilt er að greiða fatagjald í stað þess hlífðarfatnaðar sem um getur í þessum reglum, enda telst hann ekki til almenns vinnufatnaðar.
- Sérákvæði varðandi málmiðnaðarmenn: Brennist vinnugallar eða skemmist á annan hátt af ástæðum sem orsakast vegna vinnunnar skal slíkt bætt.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article