Byggiðn - Vaktavinna/vaktaálag

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:29 AM by Baldur Guðmundsson

Fyrirvari og uppsögn vaktavinnutímabils

Sé fyrirhugað að taka upp vaktavinnu í fyrirtæki, þarf að tilkynna starfsmönnum þá fyrirætlan með fyrirvara, sem er háður lengd væntanlegs vaktavinnutímabils. Sama gildir um uppsögn vaktavinnufyrirkomulags: 

Lengd vaktavinnutímabils

7 dagar - 1 mánuður

1-6 mánuðir

6 mánuðir eða lengur

Fyrirvari vaktupptöku

3 dagar

14 dagar

21 dagur

Uppsögn vakta

Samtímis

1 vika

1 mánuður

 

 

 

Lengd vakta og neysluhlé

Starfsmaður í vaktavinnu hefur ekki matartíma nema um það hafi verið samið. Vélstjórar taka neysluhlé eftir því sem aðstæður leyfa eftir nánara samkomulagi við vinnuveitanda. 

 

Lengd vakta

Lengd neysluhlés

Fjöldi neysluhléa

8 klst.

35 mín.

1 hlé

9 klst.

40 mín.

2 hlé

10 klst.

45 mín.

2 hlé

11 klst.

50 mín.

2-3 hlé

12 klst. eða lengur

65 mín.

2-3 hlé

 


Vaktaálag

Vaktaálag fyrir vaktavinnu (utan kl. 08:00 - kl. 16:00 mánudaga til föstudaga) er sem hér segir

  • 35% á tímabilinu kl. 16:00 - kl. 24:00 mánudaga til föstudaga
  • 55% á tímabilinu kl. 08:00 - kl. 24:00 laugardaga og sunnudaga
  • 60% á tímabilinu kl. 00:00 - kl. 08:00 alla daga

 

Öll vinna vaktavinnumanna umfram 37 klst. á viku að meðaltali skal greidd með yfirvinnukaupi. 

Vinna á stórhátíðum greiðist þó með yfirvinnukaupi auk fastra launa. 

 

Sérreglur um skammtímavaktir

  • Greiða skal 10 mínútur í yfirvinnu fyrir hverja unna vakt, þegar vaktavinna stendur yfir skemur en 1 mánuð. (Hér er ekki átt við lengd verka) 
  • Hafi vaktavinnutímabil verið áætlað skemmra en einn mánuður, en lengist síðan einhverra hluta vegna, skal þó eigi greiða þetta skammtímavaktaálag lengur en í einn mánuð. 
  • Hafi vaktavinnutímabil hins vegar verið áætlað lengra en einn mánuður, en lýkur þó innan mánaðar skal greiða skammtíma- vaktaálag á þær vaktir, sem unnar voru.

 

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article