Byggiðn - Orlofsuppbót

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:30 AM by Baldur Guðmundsson

Hverjir fá orlofsuppbót?

  • Orlofsuppbót fá starfsmenn sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1.maí.
  • Húsasmiðir og pípulagningamenn í ákvæðisvinnu fá greidda orlofsuppbót líkt og aðrir.
  • Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.
  • Þeim sem eru eða hafa verið í hlutastarfi ávinna sér orlofslaun í samræmi við starfshlutfall, en eiga rétt á óskertu orlofi. 
  • Þeim sem sagt er upp störfum eiga að fá öll áunninn orlofslaun greidd við starfslok.
  • Atvinnulausir sem skráðir eru hjá Vinnumálastofnun, fá greiddar atvinnuleysisbætur og hafa áunnið sér orlofsdaga á orlofstímabilinu 1. maí  til 30.apríl  gætu þurft að taka orlof. Á vottorði vinnuveitenda er spurt "Var ótekið orlof við starfslok? ef vinnuveitandi merkir í þann reit og skráir jafnframt inn fjölda ótekinna orlofsdaga getur viðkomandi þurft að vera jafn marga daga án bóta á tímabilinu frá 1. maí til 15. september.

 

Hversu há er orlofsuppbótin?

  • Full orlofsuppbót er kr. 53.000.
  • Orlofsuppbót er miðuð við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01. maí.-30. apríl). Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

 

Hvenær er orlofsuppbót greidd út?

  • Orlofsuppbót greiðist 1. júní

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article