Mikilvægt er að launagreiðendur skili iðgjöldum starfsfólks reglulega.
- Iðgjaldatímabil er að hámarki einn mánuður.
- Gjalddagi iðgjalda er 10. dagur næsta mánaðar á eftir iðgjaldamánuði.
- Eindagi er síðasti virki dagur næsta mánaðar á eftir iðgjaldamánuði.
- Dæmi: Iðgjöld vegna launa í janúar eru með gjalddaga 10.febrúar og eindaga síðasta virka dag febrúar.
Innheimtuaðilar fyrir Byggiðn - Félag byggingamanna eru tveir:
- Birta lífeyrissjóður innheimtir fyrir þá félagsmenn sem starfa á Reykjavíkursvæðinu.
- Skrifstofa Byggiðnar á Akureyri innheimtir fyrir þá félagsmenn sem starfa á Eyjafjarðarsvæðinu. Nánar hér.
Iðgjöld
Þau gjöld sem launagreiðendur ber að skila til Byggiðnar af starfsmönnum sínum eru:
- félagsgjöld,
- endurmenntagjald,
- iðgjöld í sjúkra- og orlofssjóð.
- Laungreiðandi greiðir einnig 0,10% gjald í starfsendurhæfingarsjóð sem lífeyrissjóður viðkomandi starfsmanns innheimtir.
Hvernig reiknast iðgjöld?
Iðgjöldin eru hlutfall af launum starfsmanns og reiknast af heildarlaunum, iðgjald reiknast ekki af ökutækjastyrk, bifreiðahlunnindum eða öðrum útlögðum kostnaði.
- Gjalddagi iðgjalda er 10. dagur næsta mánaðar og eindagi síðasti virki dagur þess mánaðar.
- Félagsgjald er 1,0 % og er dregið af félagsmanni.
- Iðgjöld í sjúkrasjóð er 1,0 % og greiðist af launagreiðanda.
- Iðgjöld í orlofssjóð er 0,25 % og greiðist af launagreiðanda.
- Endurmenntunargjald er 0,5 % og greiðist af launagreiðanda.
Einyrkjar: Fyrir þá félagsmenn sem eru einyrkjar skal félagsgjald miðast við þeir greiði 1,0 % af reiknuðu endurgjaldi eins og það er á hverjum tíma hjá viðkomandi.
Heimlisföng, kennitala og sími
Byggiðn - Félag byggingamanna
- Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
- Skipagötu 14 600 Akureyri
Kt: 660269-1779
Sími: 5 400 100
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article