RSÍ - Um sjúkrasjóð

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:13 AM by Baldur Guðmundsson

Hverjir eiga rétt á greiðslum úr sjúkrasjóði?

  • Að greitt hafi verið fyrir félagsmann samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.
  • Sjóðurinn bætir launatap félaga þegar hefðbundnir veikindadagar hjá vinnuveitanda eru búnir.

 

Við hvaða aðstæður eru dagpeningar greiddir?

  • Í veikinda- og slysaforföllum er bótatímabilið 120 dagar. Endurnýja þarf umsókn um dagpeninga við lok bótatímabils vari veikindi áfram. Framkvæmdastjórn sjóðsins metur hvort dagpeningar eru greiddir lengur en eitt bótatímabil og hvaða dagpeningar eru þá greiddir.
  • Vegna langvarandi veikinda maka eða barna enda missi sjóðfélagi launatekjur vegna þeirra. Sé um veikindi barna að ræða þá hafi 10 daga rétturinn verið fullnýttur, og maki eigi ekki tök á að annast barnið. Vegna veikinda maka skal við það miðað að launamissir vegna veikindi hafi staðið í a.m.k. 2 vikur.

 

Hvað eru dagpeningargreiðslur háar?

  • Upphæð dagpeninga skal tryggja 80% af meðallaunum viðkomandi síðustu fimm mánuði fyrir veikindi, skv. iðgjaldayfirliti til Styrktarsjóðs. Hafi verulegar breytingar orðið á launum viðkomandi yfir þetta fimm mánaða tímabil er heimilt að lengja viðmiðunartímann í allt að 10 mánuði. 
  • Mánaðarleg greiðsla samkvæmt þessari reglu getur þó ekki numið hærri upphæð en kr.1.047.495.- á mánuði (frá 1. janúar 2023).
  • Heimilt er að skerða styrki í hlutfalli við starfshlutfall félagsmanns. Fullt starf er miðað er við lágmarkstaxta kjarasamnings viðkomandi. Hjá einyrkjum er fullt starf miðað við lágmarksgjald sem RSÍ ákveður hverju sinni.

 

Hvað gögn þarf að leggja fram?

  • Sjúkradagpeningavottorð: Læknisvottorð um óvinnufærni vegna veikinda.
  • Veikindaréttarvottorð: Vottorð frá vinnuveitanda um greiðslur í veikindum.
  • Launaseðla: Heimilt er að óska eftir launaseðlum síðustu mánaða. Dagpeningar greiðast frá þeim tíma að lögboðinni eða samningsbundinni kaupgreiðslu frá atvinnurekanda lýkur.

 

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article