RSÍ - Menntastyrkur

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:15 AM by Baldur Guðmundsson

Skilyrði

  • Að greitt hafi verið til Menntasjóðs rafiðnaðarins síðustu 12 mánuði ( eða 18 mánuði af síðustu 24 mánuðum )
  • Að ekki hafi verið nýttir aðrir styrkir eða niðurgreiðsla námskeiðsgjalda í menntakerfi rafiðnaðarins síðustu 18 mánuði.

 

Upphæð styrks

  • Hámarksstyrkur er kr. 140.000 á ári til hvers félagsmanns.
  • Endurgreitt er  helmingur þeirrar upphæðar er kvittun segir til um, en aldrei hærri upphæð en kr.140.000.
  • Ferðakostnaður er ekki greiddur.
  • Ekki eru veittir styrkir til sambærilegs náms eða námskeiðs og er í boði hjá Rafmennt.

Hvaða nám er styrkt?

  • Nám í stærðfræði sem er viðbót við framhaldsskólanám og geta talist til undirbúnings háskólanáms eða eru á háskólastigi.
  • Framhaldsnám á sviði raungreina og eðlis- og efnafræði sem er viðbót við framhaldsnám og geta talist til undirbúnings háskólanáms eða á háskólastigi.
  • Tungumálanám til undirbúnings háskólanáms og talist geta á háskólastigi.
  • Upphafsnám á brautum á háskólastigi.
  • Annað nám sem veitir réttindi og/eða styrkir félagsmenn í störfum sínum.
  • Viðkennd námskeið í fagnámi sem ekki eru haldin hjá RAFMENNT. 
  • Heimilt er að veita styrki til að sækja sérhæfð fagnámskeið erlendis á sviðum sem ekki eru í boði innanlands. Upphæð styrks skal miðuð við ferða- og námskeiðskostnað en getur þó ekki numið hærri fjárhæð en kr 140.000. í þeim tilvikum þarf að skila staðfestingu á skráningu og greiðslu námskeiðsgjalds, flugmiða, kvittun vegna hótelkostnaðar og greinargerð þar sem fram kemur um hvað námskeið fjallar, námslengd og hvar og hvenær námskeiðið er haldið sem og lýsing á starfssviði umsækjenda.

 

Fylgigögn með umsókn

  • Greiðslukvittun þar sem fram kemur tímabil, nafn og kennitala seljanda og félagsmanns ásamt upphæðinni sem greidd var.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article