Vinna innan flutningslínu
Á höfuðborgarsvæðinu
- Starfsmenn skulu við upphaf og lok vinnudags í sínum tíma og á sinn kostnað ferðast til og frá vinnustöðum á höfuðborgarsvæðinu á svæði sem afmarkast af línu, sem dregin er úr nyrðri bakka mynnis Leirvogsár, þaðan í Minna Mosfell, þaðan í Gljúfrastein, þaðan í norðurenda Langavatns, þaðan beina línu í Hamranes. Þaðan beina sjónhendingu til sjávar sunnan við Fiskeldisstöð Pólarlax hf.
- Ef vinnuveitandi skipuleggur vinnu þannig að starfsmaður þarf að mæta í eigin tíma og á eigin kostnað á mismunandi vinnustöðum innan sama mánaðar, þremur eða fleiri, skal koma til móts við aukinn kostnað starfsmanns eða bjóða upp á flutning frá verkstæði/starfsstöð í eigin tíma starfsmanns. Það teljast mismunandi vinnustaðir ef meira en 2 km eru á milli vinnustaða. Endurgreiðsla kostnaðar miðast við 11,11 km akstur á dag þann mánuðinn m.v. akstursgjald Ferðakostnaðarnefndar ríkisins.
Utan höfuðborgarsvæðisins
Utan höfuðborgarsvæðis ber að miða við svæði sem afmarkast af 12 km radíus frá miðkjarna hvers þéttbýliskjarna. Þó á starfsmaður við þessar aðstæður rétt á flutningi á kostnað vinnuveitanda ef vinnustaður er meira en 5 km utan byggðamarka viðkomandi þéttbýliskjarna eða akstursleið lengri en 12 km frá miðkjarna, en í eigin tíma og án fæðisgreiðslna.
Vinna utan flutningslínu
Sé vinnustaður utan þeirra marka, er greint er hér á undan gildir eftirfarandi:
- Starfsmenn skulu fluttir þeim að kostnaðarlausu til og frá vinnu kvölds og morgna.
- Atvinnurekanda er heimilt að ákveða einn brottfararstað innan flutningslínu til vinnustaðar , sem er utan flutningsmarka. Ákvörðun um brottfararstað skal þó háð því að á honum sé viðunandi aðstaða til bifreiðageymslu og biðskjóls.
- Tefjist brottferð til heimilis eða vinnustaðar og starfsmönnum er ekki um að kenna, skulu þeir halda fullum launum meðan á biðtíma stendur og þar til komið er á áfangastað.
- Mæti starfsmaður ekki á tilsettum tíma til brottferðar frá heimili eða vinnustað, verður hann sjálfur að sjá sér fyrir flutningi á eigin kostnað.
- Starfsmönnum skal séð fyrir málsverðum þeim að kostnaðarlausu. Heimilt er þó atvinnurekanda að flytja starfsmenn til heimila sinna eða á fasta starfsstöð í og úr mat í stað málsverðar enda séu þær ferðir farnar í vinnutíma.
- Þegar aðstæður eru þannig í verkum sem standa skemur en 5 daga að atvinnurekandi getur ekki lagt starfsmönnum til fæði, er honum heimilt að gera samkomulag við starfsmenn um að þeir sjái sér sjálfir fyrir hádegis- og/eða kvöldverði. Skal þá greiða þeim eftir reikningi eða dagpeninga sem frá og með 1. apríl 2019 eru kr. 3.515 á dag sé um eina máltíð að ræða og kr. 7.030 á dag sé um tvær máltíðir að ræða.
- Dagpeningar þessir taka almennum launahækkunum.
- Sé starfsmaður fjarverandi lengur en einn sólarhring við að sinna þjónustu á sjó eða í landi vegna viðhalds eða prófunar á tækjum og búnaði skal samið um fjarvistarálag, enda hafi ekki verið gert ráð fyrir þóknun vegna slíkra fjarvista við ákvörðun launa.
Was this article helpful?
That’s Great!
Thank you for your feedback
Sorry! We couldn't be helpful
Thank you for your feedback
Feedback sent
We appreciate your effort and will try to fix the article