VM - Vinna innan/utan flutningslínu

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:22 AM by Baldur Guðmundsson

Vinna inna flutningslínu

Gildir um málmiðnaðarmenn en ekki blikksmiði. Um blikksmiði vísast til samkomulags Félags blikksmiða og Félags blikksmiðjueigenda, dags. 3. maí 1995.

 

Á höfuðborgarsvæðinu

  • Á starfssvæðinu skulu starfsmenn mæta til og fara frá vinnu á heimaverkstæði í eigin tíma. Mæti menn á heimaverkstæði skulu þeir fluttir að og frá vinnustað í vinnutíma.
  • Heimilt er að láta starfsmenn hefja og ljúka vinnu á verkstað í stað heimaverkstæðis enda hafi það verið tilkynnt fyrir lok vinnudags. Ferðir innan flutningslínu eru þá í eigin tíma starfsmanns. Þess ber að gæta að ferðir á verkstað í stað heimaverkstæðis séu ekki óeðlilega íþyngjandi fyrir starfsmann.
  • Á höfuðborgarsvæðinu eru tvö starfssvæði: Annars vegar: Reykjavík (utan Kjalarness), Mosfellsbær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Garðabær og Bessastaðahreppur. Hins vegar: Kjalarnes og Kjósarhreppur.
  • Þegar unnið er utan heimaverkstæðis skulu starfsmenn eigi njóta lakari fæðishlunninda eða niðurgreiðslu á fæði en starfsmenn á heimaverkstæði.
  • Um blikksmiði vísast til samkomulags Félags blikksmiða og Félags blikksmiðjueigenda, dags. 3. maí 1995.

 

Utan höfuðborgarsvæðisins

Utan höfuðborgarsvæðis ber að miða við svæði sem afmarkast af 12 km radíus frá miðkjarna hvers þéttbýliskjarna. Þó á starfsmaður við þessar aðstæður rétt á flutningi á kostnað vinnuveitanda ef vinnustaður er meira en 5 km utan byggðamarka viðkomandi þéttbýliskjarna eða akstursleið lengri en 12 km frá miðkjarna, en í eigin tíma og án fæðisgreiðslna.


Vinna utan flutningslínu

Sé vinnustaður utan þeirra marka, er greint er hér á undan gildir eftirfarandi:

  • Starfsmenn skulu fluttir þeim að kostnaðarlausu til og frá vinnu kvölds og morgna.
  • Atvinnurekanda er heimilt að ákveða einn brottfararstað innan flutningslínu til vinnustaðar , sem er utan flutningsmarka. Ákvörðun um brottfararstað skal þó háð því að á honum sé viðunandi aðstaða til bifreiðageymslu og biðskjóls.
  • Tefjist brottferð til heimilis eða vinnustaðar og starfsmönnum er ekki um að kenna, skulu þeir halda fullum launum meðan á biðtíma stendur og þar til komið er á áfangastað.
  • Mæti starfsmaður ekki á tilsettum tíma til brottferðar frá heimili eða vinnustað, verður hann sjálfur að sjá sér fyrir flutningi á eigin kostnað.
  • Starfsmönnum skal séð fyrir málsverðum þeim að kostnaðarlausu. Heimilt er þó atvinnurekanda að flytja starfsmenn til heimila sinna eða á fasta starfsstöð í og úr mat í stað málsverðar enda séu þær ferðir farnar í vinnutíma.
  • Þegar aðstæður eru þannig í verkum sem standa skemur en 5 daga að atvinnurekandi getur ekki lagt starfsmönnum til fæði, er honum heimilt að gera samkomulag við starfsmenn um að þeir sjái sér sjálfir fyrir hádegis- og/eða kvöldverði. Skal þá greiða þeim eftir reikningi eða dagpeninga sem frá og með 1. apríl 2019 eru kr. 3.515 á dag sé um eina máltíð að ræða og kr. 7.030 á dag sé um tvær máltíðir að ræða.
  • Dagpeningar þessir taka almennum launahækkunum.
  • Sé starfsmaður fjarverandi lengur en einn sólarhring við að sinna þjónustu á sjó eða í landi vegna viðhalds eða prófunar á tækjum og búnaði skal samið um fjarvistarálag, enda hafi ekki verið gert ráð fyrir þóknun vegna slíkra fjarvista við ákvörðun launa.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article