RSÍ - Styrkir úr sjúkrasjóði - líkamsræktarstyrkur

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:16 AM by Baldur Guðmundsson

Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum, fjarþjálfun, sundkort (6 mánaða kort og árskort, ekki stakir sundtímar), dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta.  Einnig er heimilt að styrkja áskriftargjöld vegna sýndarveruleikaforrita sem eru til þess fallin að stunda íþróttir t.d. golf, róður, hjól eða hlaup. Forrit sem notuð eru til gagnasöfnunar eins og t.d. Strava, Runkeeper eða MapMy Run eru ekki styrkhæf.

 

Skilyrði

  • Að greitt hafi verið af sjóðfélaga samfellt í a.m.k. 6 síðustu mánuði.

 

Upphæð styrks

  • Greiðslan nemur allt að 60% framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 60.000 á hverju 12 mánaða tímabili. (Breytt 18.jan. 2022)

 

Fylgigögn með umsókn

  • Greiðslukvittun þar sem fram kemur, nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.
  • Greiðslukvittun er jafnframt skilyrði í þeim tilvikum þar sem um er að ræða ótímabundinn samning, greitt er samkvæmt útlögðum kostnaði.


Líkamsræktarstyrkur fyrir félaga sem komnir eru á eftirlaun

Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna þjálfunar í líkamsræktarstöðvum, (2 mánaða kort eða árskort), sundkort (6 mánaða kort og árskort, ekki stakir sundtímar), dansskólum (námskeið) og íþróttafélögum vegna íþrótta.

 

Skilyrði

  • Að sjóðfélagi hafi verið virkur félagsmaður við starfslok.
  • Að ekki séu liðin meira en 5 ár frá starfslokum.

 

Upphæð styrks

  • Greiðslan nemur allt að helmingi framlagðs kostnaðar en þó aldrei hærra en kr. 30.000 á hverju 12 mánaða tímabili. (Nýtt frá 1.jan 2018) Gildir eingöngu um þennan styrk.

 

Fylgigögn með umsókn

  • Greiðslukvittun þar sem fram kemur tímabil þjálfunar, nafn og kennitala seljanda og kaupanda ásamt upphæðinni sem greidd var.
  • Greiðslukvittun er jafnframt skilyrði í þeim tilvikum þar sem um er að ræða ótímabundinn samning, greitt er samkvæmt útlögðum kostnaði.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article