VM - Vinna utan umdæmis

Created by Baldur Guðmundsson, Modified on Wed, 22 Feb, 2023 at 10:22 AM by Baldur Guðmundsson

Þegar unnið er svo langt frá heimabyggð, að nauðsynlegt er að liggja við á vinnustað, gildir eftirfarandi:

 

Laun, upphald og ferðakostnaður

  • Greiða skal kaup og allan uppihalds- og ferðakostnað frá því lagt er af stað og þar til komið er heim aftur, samkvæmt eftirfarandi reglum:
  • Á leið til ákvörðunarstaðar þar til vinna hefst, skal greitt kaup fyrir alla þá tíma sem verið er á ferðalagi, sé farið landveg eða loftleiðis.
  • Sé farið sjóveg er greitt dagvinnukaup fyrir hvern dag meðan ferðin stendur yfir, þó einungis fyrir þann stundafjölda er til dagvinnu telst, enda sé starfsmönnum séð fyrir hvílum þegar ferðast er að næturlagi.
  • Sömu ákvæði og hér hafa verið tilgreind gilda um heimferð. Þessi ákvæði gilda við upphaf og enda verks og skipulagðar ferðir í byrjun og lok vinnulotu. Heimilt er að semja um fasta lengd ferðatíma.

 

Viðlega á vinnustað

Þegar legið er við á vinnustað skulu starfsmenn hafa frítt fæði og húsnæði. Um aðbúnað að öðru leyti vísast til reglna um húsnæði vinnustaða nr. 581/1995 og reglna um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á byggingavinnustöðum og við aðra tímabundna mannvirkjagerð nr. 547/1996.

 

Helgarferðir milli vinnustaðar og heimabyggðar

  • Starfsmenn skulu hafa fríar ferðir í vinnutíma til og frá vinnustað um hverja helgi, sé unnið í ekki meira en 250 km fjarlægð frá lögskráðri starfsstöð.
  • Ef vinnustaður er utan 250 km, er heimilt að skipuleggja vinnu þannig að töku vikulegs frídags sé frestað, þannig að í stað vikulegs frídags komi tveir samfelldir frídagar á tveimur vikum, sem skulu vera laugardagur og sunnudagur, verði því við komið. Hér gilda ákvæðin undir fyrri liðum þessa kafla, en að því undanskildu að ekki er skylt að flytja starfsmenn til lögsagnarumdæmis nema um aðra hverja helgi.
  • Ákvæði þessarar greinar um ókeypis flutning milli ráðningarstaðar og vinnustaðar og kaupgreiðslu á meðan ferðin stendur yfir, gilda því aðeins að starfsmenn hætti vinnu af ástæðum er atvinnurekandi samþykkir.
  • Sá, sem ekki mætir á tilteknum stað og tíma til brottferðar, verður sjálfur að sjá fyrir fari á sinn kostnað.
  • Allir mannflutningar á landi skulu fara fram í viðurkenndum fólksflutningabílum.
  • Sé ófært til heimabyggðar af einhverjum óviðráðanlegum ástæðum, er það atvinnurekanda vítalaust, enda skal veita frí strax og aðstæður leyfa.

Was this article helpful?

That’s Great!

Thank you for your feedback

Sorry! We couldn't be helpful

Thank you for your feedback

Let us know how can we improve this article!

Select at least one of the reasons

Feedback sent

We appreciate your effort and will try to fix the article